Stjörnur sem höfnuðu stórhlutverkum

Það er dálítið erfitt að ímynda sér John Travolta sem Forrest Gump. Eða Gwyneth Paltrow í hlutverki Kate Winslet í  Titanic. Þetta hefði engu að síður getað verið raunin. Gwyneth fljótandi á spýtubraki einhversstaðar á hafi úti, flautandi og öskrandi come baaack, coooome back. Nei, ég er ekki að sjá þetta fyrir mér. Ekki alveg.

Sjá einnig: Titanic: Mistök í kvikmyndinni sem þú tókst örugglega ekki eftir

Hérna eru fáeinar stjörnur sem hafa mögulega nagað sig í handarbökin í gegnum tíðina:

0287A34D00000578-3081618-image-m-11_1431693367298

227C1CDA00000578-3081618-image-a-43_1431611166729

Meg Ryan neitaði að leika vændiskonuna Vivian í kvikmyndinni Pretty Woman. Ryan leist ekki á handritið – en það var upphaflega talsvert sorglegra og dramatískara en sú bíómynd sem við þekkjum í dag.

1FBA693000000578-3081618-image-m-28_1431698689481

125B1238000005DC-3081618-image-m-8_1431693222598

James Cameron vildi ólmur fá leikkonuna Gwyneth Paltrow til þess að fara með eitt aðalhlutverkið í Titanic. Það gekk ekki eftir og hefur Gwyneth viðurkennt að hún hugsi oft til þess með eftirsjá.

0597137100000514-3081618-image-m-194_1431618377152

12DB808E000005DC-3081618-image-a-201_1431618456543

Ástralska leikaranum Hugh Jackman var boðið hlutverk James Bond þegar samningur Pierce Brosnan var á enda. Hugh hafnaði tilboðinu og sagði sér nægja hlutverk Wolverine í X-Men kvikmyndunum.

01CE106A0000044D-3081618-image-m-71_1431612489798

000CBCC800000258-3081618-image-m-74_1431612517298

Sarah Michelle Gellar bauðst aðalhlutverkið í Clueless en gat ekki þegið það vegna hlutverks síns í sápuóperunni All My Children.

1E96CB2600000578-3081618-image-m-84_1431614338742

01E881720000044D-3081618-image-m-98_1431614427498

Sandra Bullock var tilneydd til þess að hafna aðalhlutverkinu í kvikmynd Clint Eastwood, Million Dollar Baby. Sandra var að leika í Miss Congeniality 2 á sama tíma og tókst ekki að sinna báðu í einu. Hillary Swank var fengin í staðinn og hlaut Óskarinn fyrir vikið.

0CDD3FB200000578-3081618-image-m-174_1431617813720

19A3309500000578-3081618-image-a-169_1431617766979

Dana Delaney, sem margir muna eftir úr Desperate Housewives, var boðið að hlutverk Carrie í þáttunum Sex and the City. Dana kærði sig kollótta um að leika í þáttum sem snerust um kynlíf og afþakkaði hlutverkið.

1B65C46700000578-3081618-image-a-129_1431616030010

0019161900000258-3081618-image-m-133_1431616045680

John Travolta afþakkaði hlutverk Forrest Gump í samnefndri kvikmynd. Travolta hefur margsinnis sagt að hann sjái gífurlega eftir þessari ákvörðun sinni. En kvikmyndin er margverðlaunuð og fékk Tom Hanks meðal annars Óskarinn fyrir leik sinn.

Sjá einnig: 13 stjörnur sem eldast hrikalega vel

SHARE