Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Ó kæra Ljón. Þessi mánuður verður ferðalag sjálfsuppgötvunar. Þú hefur reitt þig á glaðværð þína til að keyra allt áfram en orkan þín er á þrotum. Nú viltu staldra við og skoða hlutina í fjarlægð og sjá hvað hefur áorkast og hvað þarf að skoða aftur.

Það er yfir mörgu að gleðjast líka í apríl hjá þér kæra ljón. Það verður kraftur í þér og þér mun líða vel með þig og útlit þitt. Þér finnst þú meira að segja ein mest aðlaðandi manneskja sem þú veist um. Æfðu þig í að sleppa tökunum og leyfa hlutunum að gerast og leyfa öðrum að taka ábyrgð og ákvarðanir og ekki láta stoltið þitt aftra þér í að leita þér aðstoðar ef þess þarf.