Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Þú ert með margt á herðum þér í apríl kæra Meyja og þig langar ekkert endilega að tala um það. Þú hefur alltaf verið þannig að þú vilt frekar „ekki ræða það“ en að gera eitthvað vitlaust. Þig langar að vera séð/ur, á sama tíma og þig langar að fela þig og það getur verið ruglingslegt. Málið er að þú getur alveg gert bæði.

Ef þú getur einbeitt þér að því hvert þú stefnir, sem er að fá smá frí, skemmta þér og slaka á, geturðu haldið athyglinni þinni í vinnunni og klárað vinnuna með stæl. Ástarmálin verða í góðum gír í þessum mánuði og það virðist sem þú munir fá eitthvað, einhvern efnislegan hlut, sem þig hefur lengi langað í.