Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Vogin

Vogin
23. september — 22. október

Búðu þig undir pirring kæra Vog en fólkið í þínum innsta hring á eftir að fara í taugarnar ár þér í apríl. Þó þú sért að „reyna“ að halda friðinn, er þolinmæði þín alveg að verða búin. Besta leiðin til að komast í gegnum þetta er að hafa opinn huga og reyna þitt besta til að koma í veg fyrir rugling og misskilning.

Þú sýnir það og sannar að stundum eru breytingar það besta til að laga gömul sár. Þú munt læra að elska sjálfa/n þig almennilega í þessum mánuði, sem hefur aldrei verið þér mjög auðvelt. Þú hefur lært svo ótalmargt um lífið á þessu ári og ert tilbúin/n að vera þinn besti vinur og bera höfuðið hátt.