Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar

Það verður mikið um heilandi og læknandi orku í kringum þig í apríl og það er eitthvað sem þú kannt að meta. Það er ekki til neins að „sykurhúða“ hlutina kæri Vatnsberi, en þú þarft að vinna í samböndum þínum í þessum mánuði. Þú þarft að vera opin/n fyrir að sjá hlutina frá öllum hliðum.

Þú ættir vinna í því að víkka út sjóndeildarhringinn þinn og forðast rifrildi og mundu að þú veist kannski ekki alveg jafn mikið og þú heldur. Sjálfsálit þitt mun aukast og þú verður miðpunktur athyglinnar. Þú gætir upplifað að einhverjir baktali þig og sé öfundsjúkur vegna velgengni þinnar í vinnu.