Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Gagnrýnendur eru alltaf til staðar og vinir koma og fara, en þú átt þig sjálfa/n að alla daga. Ekki bara það, þá líður þér eins og þú munir alltaf lenda á báðum fótum, í betra formi en nokkru sinni fyrr, kæra Naut.

Þér finnst svolítið, í apríl, eins og þú þurfir að lesa á milli línanna og skilja ósögð orð. Passaðu bara að lesa ekki alltof mikið í aðstæður. Stundum þarftu bara að treysta á innsæið þitt í stað þess að „grafa“ of djúpt. Það er kominn tími til að kafa í ný áhugamál og nota orkuna sem er innra með þér til skapandi og gefandi hluta. Styrktu böndin sem þú átt nú þegar og þá sérstaklega þau sambönd sem hafa nært þig andlega.

Æfðu þig í að sleppa tökunum og leyfðu hlutunum að gerast og ekki láta stoltið þitt aftra þér í að leita þér aðstoðar ef þess er þörf.