Subbulega gott helgarsnakk – Uppskrift

Jú. Jújú. Þið sjáið rétt. Þetta eru kartöfluflögur með súkkulaði, karamellu og karamellukurli. Ekki hætta að lesa. Hættið bara að dæma. Þetta er merkilega gott. Ég lofa.

IMG_6807

Í þessar framkvæmdir þarf:

Kartöfluflögur (helst rifflaðar, af því að rifflað er alltaf betra)

Mjólkursúkkulaði

Rjómakaramellur

Karamellukurl

IMG_6812

IMG_6813

Bræðið súkkulaðið og karamellurnar. Ég setti örlítinn rjóma með karamellunum.

IMG_6820

Dreifið úr snakkinu á bökunarpappír. Skvettið og slettið öllu yfir – bæði súkkulaði og karamellu. Sleikja svo alla putta og skeiðar.

IMG_6821

IMG_6819

Ein lúka af karamellukurli yfir allt saman. Eða bara – þið vitið, heill poki. Það virkar líka fínt.

IMG_6824

IMG_6830

Lyktin af þessu er unaðsleg og bragðið svo sannarlega ekki síðra.

Skora á ykkur að prófa!

Tengdar greinar:

Epla og karamellu bollakökur – Uppskrift

Heimatilbúnir Snickers bitar – Uppskrift

Nammisprengja með Nutella, Maltesers, Oreo & Dumle karamellum

SHARE