Súkkulaðiís með kakómalti

Þessi er spennandi að prófa. Kannski tilvalinn til að hafa um jólin. Þessi kemur frá vinkonum okkar Eldhússystrum.

Eins og hin uppskriftin að heimagerða ísnum sem ég gerði um helgina þá er þessi uppskrift frábærlega einföld, fljótleg og góð. Ég get ekki annað en mælt með því að þið prófið þessa uppskrift líka 🙂

Hráefni
5 dl rjómi
1 dós condensed milk (400 gr)
1,5 dl kakómalt

1 tsk sjávarsalt

Aðferð
Lag 1 –  Grunnur
Þeytið rjómann vel. Blandið 2 dl af condensed milk vel saman við þeytta rjóman.


Lag 2
Takið 1/3 af grunninum og blandið með 1/2 dl af kakómaltinu. Setjið til hliðar.
 

Lag 3
Blandið restinni af condensed milk saman við 1 dl af kakómaltinu og 1 tsk af muldu sjávarsalti. Setjið til hliðar.

Ísnum blandað saman.
Blandið öllum lögum íssins saman í formi (t.d. aflöngu brauðformi eða springformi), sem búið er að klæða með plastfilmu. Setjið fyrst grunninn í formið og síðan lag 2 og 3. Notið skeið eða hníf til að hræra í ísnum án þess þó að hræra honum alveg 100% saman (maður vill að íslögin sjáist almennilega – sjá mynd).

Frystið ísinn í minnst 6 klst, ef ísinn er gegnumfrosinn þarf að leyfa honum að standa aðeins og þiðna áður en hann er borinn fram.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here