Tiramisu með jarðaberjum – Uppskrift

Tiramisu er vel þekktur og vinsæll eftirréttur. Og jarðarber gera hann enn betri!

Efni: (fyrir 5)

  • 320gr. jarðarber
  • 5 msk. sykur
  • 8 msk. amaretto líkjör
  • 3 egg, aðskilin
  • 3 msk sykur
  • 235gr. mascarpone ostur (má nota blöndu af rjómaosti og sýrðum rjóma í staðinn fyrir mascarpone ostinn)
  • 6 stórar savoiardi kexkökur eða „ladyfingers“ (uppskrift fylgir ef þið viljið baka þær )
  • 2 msk. vatn

 

Aðferð:

  1. Kremjið jarðarberin með handþeytara (takið frá nokkur ber til skrauts). Bætið 2msk. og líkjörnum út í.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar.
  3. Þeytið eggjarauðurnar með 3msk. af sykri. Bætið eggjahvítum og mascapope út í og loks 2 msk. af líkjör.
  4. Setjið lag af kökunum á botninn á hverju glasi.
  5. Blandið saman 4 msk. sem eftir eru af amaretto líkjörnum og 2msk. af vatni. Berið blönduna á kökurnar.
  6. Bætið nú dálitlu af ostablöndunni út á kökurnar.
  7. Bætið jarðarberjablöndunni út í glösin.
  8. Hyljið glösin með plastþynnu og setjið í ísskáp í 2-3 tíma.
  9. Skreytið með jarðarberjum.
  10. Berið eftirréttinn kaldan fram.

 

  •  „ladyfingers“
  • 1/2 bolli hveiti
  • 3 stór egg (skiljið rauður frá hvítum)
  • 2 msk. sykur
  • 1/2 tsk. vanilludropar
  • 1/8 tsk. matarsóti
  • 3 msk. grófur sykur
  • flórsykur til að strá yfir kökurnar

Aðferð

Hitið ofninn upp í 170˚ C

  • Þeytið eggjarauðurnar og 2 msk. af sykri þar til hræran er orðin ljós og þykk. Bætið vanilludropum út í. Hristið hveitið yfir og út í en hrærið ekki.
  • Stífþeytið eggjahvíturnar með matarsótanum. Bætið sykrinum ( 3 msk.) út í og þeytið áfram þar til hvíturnar eru fullþeyttar. Bætið þeim út í rauðurnar og hveitið og blandið vel.
  • Setjið deigið í sprautupoka, sprautið því á bökunarplötu (með pappír á) í 7cm langar lengjur. Hafið gott bil á milli lengjanna.
  • Látið flórsykurinn í sigti og hristið ofan á kökurnar. Bakið í 8-10mín. þar til þær eru ljósbrúnar.

 

 

 

 

SHARE