Tónleikar Símans á Kex Hostel annað kvöld!

Ylja, Hjaltalín og Sometime troða upp –

                              

Tónleikarnir í heild verða á vef Símans.

Búast má við því að stappfullt verði á tónleikum Símans og þriggja frábærra hljómsveita, Ylju, Hjaltalín og Sometime, á Kex Hostel annað kvöld. Fyrstir koma, fyrstir fá besta plássið á hostelinu.

Bjartey, Guðný Gígja og hljómsveit þeirra Ylja hefja leikinn. Hjaltalín endar. Tónleikunum verður streymt á vef Símans annað kvöld, miðvikudaginn 21. ágúst. Enginn þarf því að missa af þótt fáir komist líklegast að en vilja á staðnum sjálfum. Streymið hefst klukkan 20.

„Frábært að uppteknir þurfi ekki að sleppa þessu tækifæri til að njóta góðrar stemningar og tónlistar. Þeir geta hlustað og horft í gegnum snjalltækin eða tölvuna meðfram öðrum verkefnum ,“ segir Gunnhildur Arna Gunnardóttir, upplýsingafulltrúi Símans.

Slóðin á streymið verður á finna á vef Símans: www.siminn.is

SHARE