Unaðsleg kaka með hnetubotni og súkkulaðimús

Þessi bomba er úr smiðju sælkerabloggarans Erlu GuðmundsÞað borgar sig að heimsækja bloggið hennar reglulega og eins má fylgjast með henni á Facebook. Þá missir þú aldrei af uppskrift.

Sjá einnig: Sjúklega góð súkkulaðikaka með kanilfyllingu

img_20150509_223436

Kaka með hnetubotni & súkkulaðimús

Botn

150 gr döðlur (lagðar í bleyti)

100 gr heslihnetur

100 gr möndlur

2 msk agave sýróp

2 msk hnetusmjör

100 gr 70% súkkulaði

1 tsk salt

  • Ég byrjaði á því að setja döðlurnar í volgt vatn og lét þær liggja þar í ca. 15 mínútur. Á meðan skellti ég möndlunum og hesilhnetunum í matvinnsluvél. Ég lét þær ekki vera of lengi en mig langaði að hafa þær pínu grófar.
  • Næst bætti ég við hnetusmjöri og agavesýrópinu. Síðan losaði ég döðlurnar við vatnið og bætti þeim út í matvinnsluvélina.
  • Að lokum skar ég síðan niður 70% súkkulaði, frekar gróft og henti í matvinnsluvélina ásamt saltinu.
  • Þegar þetta var klárt þá klæddi ég hringlaga bökunarform með bökunarpappír til þess að sporna gegn því að botninn myndi festast í forminu. Skellti síðan botninum í frysti og hann var orðin klár eftir 1 klukkustund.

Súkkulaðimús

250 ml rjómi

60 gr íslenskt smjör

200 gr 70% súkkulaði

2 egg

1 tsk vanillusykur

  • Gott er að byrja á því að þeyta rjómann og á meðan hann þeytist að bræða súkkulaðið og smjörið saman í potti. Leyfið súkkulaðinu að kólna pínu áður en þið skellið eggjunum út í.
  • Byrjið á að setja eitt egg og hrærið svo, ég hrærði bara varlega með gaffli og bætti svo seinna egginu út í ásamt vanillusykrinum.
  • Þegar búið er að hræra þessu öllu saman þá er súkkulaðiblöndunni blandað varlega saman við stífþeyttan rjómann, ég setti fyrst helming og blandaði saman mjög varlega með sleikju og skellti síðan restinni út í. Þá er súkkulaðimúsin klár og henni hellt ofan á botninn og dreift vel úr henni.
  • Gott er að gera kökuna með 3 klst fyrirvara eða dags fyrirvara, en hún er best daginn eftir.
  • Ég skreytti með smá Hrís, hindberjum og brómberjum en það má að sjálfsögðu skreyta með hverju sem er.

Sjá einnig: Rice Krispies kubbar með Oreo & hvítu súkkulaði

SHARE