UT torg opnar

Formleg opnun UT-torgs var á ráðstefnunni „Tilbúin fyrir tæknina?“ í Norðlingaskóla. Upplýsingatæknitorg er opið starfssamfélag skólafólks sem hefur áhuga á að nýta upplýsingatækni í skólastarfi. Markmið þess er að styðja við notkun UT í námi og kennslu, símenntun og upplýsingamiðlun um tækni- og skólaþróun og styrkja tengsl milli skólafólks og fræðasamfélags háskólanna. UT-torg er eitt af torgunum á MenntaMiðju sem hefur það hlutverk að veita nýjum starfssamfélögum í menntageiranum stuðning.

Hugmyndafundur var haldinn í júní. Þar komu fram frábærar hugmyndir um starfsemi torgsins sem flokkaðar voru í eftirfarandi efnisflokka:

       Nýjungar í tækni og skólastarfi

       Hagnýtar upplýsingar um notkun UT í námi og kennslu

       Starfssamfélög í UT

       Umræða og stefnumótun

       Símenntun og starfsþróun

 Einnig var markhópurinn skilgreindur:

       Starfandi kennarar

       Skólastjórnendur

       Kennaranemar

       Foreldrar og nemendur

       Fagfélög

       Yfirvöld

       UT iðnaður

       Háskólasamfélag

 Vefurinn er vettvangur til þess að fræðast, deila og ræða um upplýsingatækni í námi og kennslu. Leitað er eftir fleiri áhugasömum einstaklingum sem vilja taka þátt í uppbyggingu torgsins. Allar ábendingar, hugmyndir og skoðanir eru vel þegnar. uppltorg@gmail.com

ut1

Hér má finna Facebook síðu UT Torg

SHARE