Það er ýmislegt sem fer fram í samböndum sem enginn annar veit um
Hann borar í nefið þegar hann heldur að ég sé ekki að horfa. Svo rúllar hann því í kúlu og skýtur því út í loftið
Hann kroppar í táneglurnar sínar og þefar svo af þeim ef þær losna, gerir mig geðveika
Hann notar aldrei sama glasið tvisvar, nær sér alltaf í nýtt og nýtt í hvert skipti
Hann er alltaf með tónlist í gangi….. Það truflar mig ekki fyrr en hann er búinn að hlusta á sama lagið 35 sinnum í röð
Hann verður að fá ný föt fyrir hvert tilefni. Ég hreinlega veit ekki hvað verður um gömlu fötin hans
Hann vaknar um miðja nótt til þess að gá hvort ég sé ekki örugglega hjá honum, faðmar mig og fer svo að sofa aftur
Hann frystir ruslið svo það fari ekki að lykta, og gleymir því svo í frystinum
Hann snýtir horinu út úr nefinu á sér án þess að nota pappír eða neitt
Hann borðar í svefni. Hann bókstaflega fer á fætur, gengur að ísskápnum og fær sér að borða á meðan hann sefur. Svo skrýtið
Kærastinn minn klippir á sér táneglurnar á sunnudagskvöldi kl 18. Furðulegt og skrýtið
Hann eyðir einum og hálfum tíma í að hnykla vöðvana, ber að ofan, fyrir framan spegilinn eftir vinnu
Hann á „samtöl“ á meðan hann sefur og talar í mismunandi röddum
Hann svitnar ekki nóg til þess að það komi vond lykt af honum. Aldrei. Óhreinu sokkarnir hans enda iðulega með hreina þvottinum .. Og ég hef heyrt hann prumpa svona þrisvar á seinustu fjórum árum
Hún fer svona 12 sinnum á fætur áður en hún sofnar til þess að athuga hvort útidyrahurðin sé læst og allir gluggarnir séu lokaðir. Ekki það að ég sé að telja.