16 kynlífsráð frá konum til karla

Það er þráður á Reddit sem er helgaður góðum ráðum tengdum kynlífi. Nokkur áhugaverð ráð sem voru frá konum til karla voru tekin saman og birt á hinni stórgóðu síðu Buzzfeed.

1. „Í alvöru það er ekkert betra en smá kossar á hálsinn til að komast í nær miðsvæðinu á konum“

kateesaurus

2. „Áður en þú snertir viðkvæm svæði á konu, skaltu vera viss um að hendur þínar séu hreinar og þú sért ekki með skítugar, rifnar eða beittar neglur. Það er ekkert verra en að vera skorin með nöglum eða að fá sýkingu vegna skítugra handa.“

Whats4dinner

3. „Forleikur virkar í alvöru. Það mun skera um hvort á móti þér taki „eyðimörk“ eða „regnskógur“.“

sucks_at_people

4. „Fáðu munnlegt samþykki hennar áður en þú tekur hana hálstaki! Konur tala oft um það að karlar taki þær hálstaki í miðju kynlífi án þess að hafa sagt nokkuð um það fyrirfram. Það er ekki bara dónaleg heldur hræðir það konur og er stórhættulegt. Þó þú sjáir þetta gerast á „náttúrulegan hátt“ í klámmyndum, þýðir það ekki að þú getir gert þetta við konur í hinum venjulega heimi.“

pizzapartyjones

5. „Þegar þú ert að fingra konu ættirðu að sleppa því að dúndra fingrunum inn og út eins og brjálæðingur, skaltu frekar snúa fingrunum og hreyfa þá mjúklega inni í henni. Það virkar miklu betur. Klámmyndir eru ekki raunveruleikinn!“

Sly_Doug

6. „Ef hún er að njóta þess sem þú ert að gera, ekki skemma það með því að gera það fastar eða hraðar. Haltu þig við það sem hún er að njóta!“

SereniaKat

7. „Þegar hún er ofan á skaltu taka í mjaðmir hennar og ýta og toga hana fram og aftur. Það var einn gaur sem gerði þetta við mig og það var mjög sexý og var svakalega gott.“

Raccoon_Virus7180

8. „Fylgstu með önduninni hennar. Öndunin getur verið góður leiðarvísir þegar kemur að unaðinum hennar.“

dontforget_again

9. „Hættu að líta á kynlíf sem eitthvað sem „þú gerir við konu“ og líttu á það sem eitthvað sem „þú gerir MEÐ konu“. Það mun breyta viðhorfi þínu algjörlega þegar kemur að kynlífi, unaði og heilbrigðu kynlífi.“

LoudAppointment2545

10. „Talaðu. Ekki vera hræddur við að spyrja hana að því hvað hún fílar. Ekki vera hræddur við að leyfa henni að kenna þér ef það þarf. Þú verður aldrei dæmdur fyrir að kunna ekki eitthvað. Þú verður dæmdur fyrir að reyna ekki.“

SupaSupaCake

11. „Þú mátt stynja ef þú ert að fíla það sem þið eruð að gera. Við viljum heyra í ykkur.“

lofi-lo

12. „Ekki hræðast að leika með kynlífshjálpartæki. Þau eru raunverulega bara hjálpartæki og koma ekki í staðinn fyrir þig í svefnherberginu. Titrari getur ekki kysst okkur, snert okkur eða spjallað, það getur þú bara gert. Leikföngin eru bara til að hafa meira gaman.“

EvilRubberDucks

13. „Eina ráðið sem ég vil gefa er að veita konunni munnmök. Sem kona, er ég til í kynlíf með þér hvar og hvenær sem er, ef þú ert til í að gefa mér munnmök og láta mig fá það. Spurðu hana hvort þetta sé gott og vertu góður í að veita munngælur.“

Alauren87

14. „Forleikur hefst með því að vera góður maki þegar þið vaknið saman að morgni.“

Fit_Celebration7669

15. „Reyndu að láta hana fá eina fullnægingu í forleiknum. Þá er hún allavega búin að fá það og ef önnur kemur í kynlífinu er það bara plús.“

Dry_Barracuda2850

16. „Ef þú ert að snerta á henni snípinn, mundu bara að léttar snertingar eru mun unaðslegri en ef þú lætur eins og þú sért að reyna að brjóta baun með þumlinum á þér. Það eru margir taugaendar í snípnum og það þarf ekki mikinn þrýsting. Ekki nema hún sé að fíla það auðvitað.“

allthingsglittery

SHARE