
Eitt af því fyrsta sem ég lærði þegar ég fór að heiman var að ná lofti úr ofnunum hjá mér. Það þekkja það margir að vera með einn eða tvo ofna á heimilinu sem vilja bara ekki hitna. Oft er ástæðan fyrir þessu að það er loft inni á ofninum og það er engin ástæða til að kalla út pípara. Þú getur lagað þetta sjálf/ur ef loft er eina ástæðan fyrir þessu.
Hér má sjá flott myndband þar sem maðurinn fer yfir það hvernig hann losar loftið úr ofninum. Hann er með einhverskonar „ofnalykil“ en þú getur alveg eins notað venjulegt „mínus“ skrúfjárn.
Sjá einnig:
- Af hverju verður koddinn gulur og allur í blettum?

- 10 góð ráð til að sjá um basilíkuna þína

- Þrif á Air-fryer – Hvernig á að gera þetta?

- 6 ráð við þvott á fötum

- Eru ofnarnir kaldir á heimilinu? – Einfalt ráð sem virkar

- Skítalykt úr vaskinum – Hvað er til ráða?


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














