
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára. Halldór, sem er brúnhærður og með skegg, er grannvaxinn og um 183 sm á hæð.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Halldórs, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.



Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














