
Magnús Ver Magnússon þarf varla að kynna fyrir landsmönnum en hann var viðmælandi minn í hlaðvarpinu fullorðins. Hann hefur 4 sinnum orðið sterkasti maður heims ásamt fleiri titlum víða um heim. Hann byrjaði að lyfta fyrir tvítugt fyrir austan og segir okkur frá því hvernig það kom til að hann endaði í kraftlyftingum.
Magnús fór fljótt suður og var áður en hann vissi af farinn að lyfta í Engihjalla með Jóni Páli Sigmundssyni, Hjalta Úrsusi og fleirum. Hann fékk svo fljótlega boð um að taka þátt í fyrsta Sterkasti maður Íslands þar sem hann endaði í þriðja sæti, en Jón Páll varð í 1. sæti.
Magnús segir okkur skemmtilegar sögur úr ferlinum en líka frá andláti systur sinnar sem hann átti sérstakt samband við. Hún var með anorexíu og lést úr þeim sjúkdómi langt fyrir aldur fram. „Ég var úti í Hollandi og hafði unnið minn 4. sigur og fékk þá þau skilaboð að hún væri látinn en fannst ég aldrei hafa fullan styrk eftir að hún dó,“ segir Magnús.
Magnús segist hafa verið að vinna að því að minnka sig seinustu misseri og vera eins heilsuhraustur og hægt er miðað við aldur og fyrri störf.
Fylgdu okkur á Facebook
Fylgdu okkur á Instagram
Fylgdu okkur á TikTok
Sjá einnig:
- „Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua“ – Inga Dóra skrifar grein

- Magnús Ver Magnússon missti systur sína úr anorexíu

- Hildur missti sjón á öðru auga eftir bólusetningu við Covid-19

- Guðrún Árný segist hafa verið fyrirferðarmikið barn

- Ingibergur Sigurðsson á skammt eftir ólifað

- Guðrún Katrín missti 19 ára son sinn sem beið eftir að komast í meðferð


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














