40 spurningar sem konur velta fyrir sér við ný kynni við hitt kynið

Ertu að byrja í nýju sambandi? Við höfum allar verið á þessum stað. Þér finnst eins og þú sért óstöðvandi og getir sigrað heiminn með hann þér við hlið. Fyrstu mánuðirnir fara í það að fara á stefnumót, borða góðan mat, stunda mikið af kynlífi og horfa á sjónvarpsþætti saman.

Það eru samt alltaf fullt af spurningum sem sækja á hugann á þessu stigi málsins og við lendum flestallar í þessum vangaveltum.

Hér eru 40 spurningar sem konur velta fyrir sér þegar þær eru að kynnast nýjum manni:

 

  1. Vill hann í alvöru vera kærastinn minn?
  2. Ætli hann tali um mig sem kærustuna sína við annað fólk eða notar hann bara alltaf nafnið mitt til þess að forðast spurningar.
  3. Hvernig veit ég hvort hann er að nota mig fyrir kynlíf eingöngu
  4. Hvenær er rétti tíminn til að eiga „samtalið“ um hvert við ætlum að fara með þetta samband
  5. Á ég að nefna það fyrst eða hann
  6. Ætli einhver í fjölskyldunni hans viti af mér?
  7. Ef svo er, hvað hefur hann sagt um mig? Ég vil smáatriði
  8. Hvað sá hann þegar hann google-aði nafnið mitt?
  9. Hefur hann sofið hjá fleirum en ég?
  10. Ef ég spyr hann hversu mörgum konum hann hefur sofið hjá, ætli hann segi satt?
  11. Hefur hann haldið framhjá?
  12. Af hverju endaði seinasta samband sem hann var í?
  13. Segir hann vinum sínum frá kynlífinu okkar?
  14. Eða það sem verra er, ætli hann segi við þá að honum finnist píkan mín ljót?
  15. Hvað eigum við að hittast lengi áður en ég hitti vini hans?
  16. Er það merki um að hann skammist sín fyrir mig, að ég hef ekki fengið að hitta þá ennþá?
  17. Af hverju er hann ekki búinn að senda mér sms? Er hann með einhverri annarri?
  18. Er hann að sofa hjá einhverri annarri? Á ég að spyrja hann? Nei örugglega ekki
  19. Hvað um mig? Ég veit hann fílar brjóstin á mér, en er það líka eitthvað annað?
  20. Hvað ef honum finnst einhver vinkona mín flottari en ég?
  21. Myndi hann einhverntímann halda framhjá mér?
  22. Hver kæmi í brúðkaupið okkar ef við giftum okkur?
  23. Hvernig myndi hann biðja mín?
  24. Og það sem meira er, hvernig hring myndi hann kaupa?
  25. Hvað ætli hann sé með í laun?
  26. Hvað ef hann segir að hann vilji eignast börn einn daginn, til þess eins að fá að sofa hjá mér?
  27. Finnst honum ég góð í rúminu?
  28. Er ég sú besta sem hann hefur sofið hjá?
  29. Af hverju er hann ekki búinn að senda mér sms?
  30. Mun mömmu hans líka vel við mig?
  31. Hvernig ætli hans fyrrverandi líti út?
  32. Hvað myndi hann gera ef ég yrði ólétt?
  33. Get ég treyst honum?
  34. Hvernig myndi hann bregðast við ef ég myndi prumpa?
  35. Hvað finnst honum um hvernig ég snyrti mig að neðan?
  36. Hugsar hann um mig þegar við erum ekki saman?
  37. Skammast hann sín fyrir mig?
  38. Hversu oft fróar hann sér?
  39. Hefur hann fundið g-blettinn SINN
  40. Af hverju í fjáranum er hann ekki búinn að senda mér sms?

 

Heimildir: Clutchmagonline.com

SHARE