6 leiðir til að fá betri fullnægingu

Sumar konur fá aldrei fullnægingu í kynlífi og getur það haft mikil áhrif á sambönd. Sumar konur fá stundum fullnægingu og þurfa mikið fyrir því að hafa.

Það eru samt til leiðir til þess að auka líkurnar á og gæði fullnægingarinnar hjá konum:

1. Hittu á réttu staðina

Það skiptir máli að vera í réttu stellingunni segir Laura Berman sem er læknir. Ef þú ert ofan á, vertu þá þannig að lífbein karlmannsins nuddist við réttu staðina. Ef þú ert undir hafðu þá kodda undir mjöðmunum, þá mun limur karlmannsins hitta á ennþá betri staði en venjulega.

2. Talaðu við hann

Laura segir að karlmenn vilji leiðbeiningar. Ef hann er að gera rétta hluti, segðu honum það og eins ef hann er ekki á réttri leið.

3. Lærðu með sjálfri þér

Danielle Cavallucci er kynfræðingur og hún segir að til þess að geta leiðbeint öðrum hvað þú viljir láta gera við þig, þá verður þú að vita það sjálf. Til þess að læra það þarftu að stunda sjálfsfróun og þannig kynnast því hvar þínir staðir eru og hvernig þú vilt láta koma við þig.

4. Æfðu grindarbotnsvöðvann

Einfaldasta leiðin til þess að æfa grindarbotnsvöðvann þinn er með því að stöðva bununa í miðjum klíðum þegar þú ert að pissa. Einnig er mælt með því að æfa þennan vöðva á hverjum degi með því að kreppa og sleppa nokkrum sinnum.

5. Dragðu fullnæginguna á langinn

Því lengur sem þú dregur það að fá fullnæginguna því stærri verður hún. Ef þú ert að nálgast það að fá fullnægingu, stoppaðu þá og gerðu þetta nokkrum sinnum áður en þú færð það.

6. Slakaðu á

Í nýlegri franskri könnun á meira en 500 konum kom í ljós að 70% kvenna sögðu að vinnuálag hefði áhrif á kynorku þeirra. Þegar komið er að svefnherbergisdyrunum, skildu þá allt annað eftir fyrir utan og njóttu stundarinnar. Einbeittu þér að hverri snertingu og hverjum kossi.

 

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here