
Það geta margir verið með D-vítamínskort án þess að gera sér grein fyrir því strax. Það eru nokkur lúmsk einkenni um D-vítamínskort sem gott er að vita af og höfum við gert lista yfir þau helstu hér:
1. Þreyta og orkuleysi
Eitt algengasta og oft vanmetnasta einkennið. Margir tengja þetta við streitu eða lítinn svefn, en langvarandi D-vítamínskortur getur haft áhrif á orkuframleiðslu frumanna.
2. Þyngra skap eða skammdegisþunglyndi
D-vítamín hefur áhrif á boðefni eins og serótónín. Skortur á því getur þá valdið:
- Þunglyndi
- Áhugaleysi
- Aukinn pirringur
3. Vöðvaverkir eða máttleysi
Þetta getur verið mjög lúmskt:
- Vöðvaslappleiki
- Vandræði með að ganga upp stiga eða standa upp
- Lélegt úthald – Sumir halda að þetta sé aldurstengt eða bara þreyta
4. Beinverkir
Skortur á D-vítamíni getur haft áhrif á kalkbúskap og þar með valdið:
- Daufum verk í mjöðmum, baki eða fótleggjum
- Eymsli í beinum – Fólk ruglar þessu oft saman við liðagigt.
5. Tíð veikindi
D-vítamín er mikilvægt fyrir ónæmiskerfið. D-vítamínskortur getur valdið:
- Að þú kvefist oftar
- Ofnæmiseinkenni versna
- Þú ert lengur að ná þér
6. Sár lengur að gróa
Skert geta líkamans til að byggja upp nýjan líkamsvef getur verið merki um langvarandi D-vítamínskort.
7. Hárlos
Þá er ekki verið að meina mikið, skyndilegt hárlos heldur þynnist hárið með tímanum. Stundum hefur þessu verið ruglað við streitu eða hormónabreytingar.
8. Svefntruflanir
D-vítamín tengist melatónínframleiðslu og skortur á D-vítamíni getur valdið:
- Lélegri svefngæðum
- Vaknar of snemma
- Lengi að sofna
9. Sviti á höfði (sérstaklega hjá ungbörnum)
Þetta er þekkt merki, þó minni áhersla sé lögð á það núorðið. Mikil svitamyndun á höfði getur verið merki um D-vítamínskort.














