7 hjartnæmar myndir af ættleiddum börnum að hitta fjölskylduna sína

Nóvember er alþjólegur ættleiðingar mánuður eða National Adoption Month. Fréttamiðillinn Huffingtonpost.com ákvað að leggja þessu málefni lið og birti nokkrar fallegar ættleiðingarsögur á síðunni sinni til að vekja athygli á því hversu börn í heiminum vantar fjölskyldu.

slide_378282_4474122_free

Scott og Rebecca Walker frá Lebanon, Tennessee ættleiddu barn frá Suður Kóreu í mars á þessu ári.

slide_378282_4461280_free

Kelley and Jeff ættleiddu Yenenesh árið 2013. Myndin var fengin af síðunni Red Thread Sessions sem er vefsíða sem fagnar ættleiðingum í gegnum ljósmyndir.

slide_378282_4477966_free

Via fjölskyldan hóf ferlið við að ættleiða Chloe frá Úganda fyrir tveimur árum. Í desember árið 2012 var Chloe neitað um landvistarleyfi í Bandaríkjunum svo Via fjölskyldan tók sig til og flutti fjölskylduna sína til Úganda.

slide_378282_4493262_free

Ted Herrera Jr. og maðurinn hans langaði til ættleiða ungabarn en þegar þeir hittu þessi fjögur systkini stóðust þeir ekki mátið og þann 8. október 2010 fengu þeir að taka þau með sér heim.

slide_378282_4464882_free

Scot og Lindsay Sines og börnin þeirra Reagan, Lilli and Zeke frá Houston, Ohio komu heim með Zechariah Scot Sines í febrúar á þessu ári.slide_378282_4478886_free

Shannon og Lee Dingle fengu að ættleiða Zoe frá Tævan í júlí árið 2012. Zoe fæddist með sjúkdóm sem kallast cerebral palsy og hefur áhrif á hreyfigetu og jafnvægi. Síðan Zoe var ættleidd hefur Shannon og Lee einnig ættleitt þrjú systkin frá Úganda en eitt þeirra er alnæmi smitað.

slide_378282_4464888_free

Zach and Nicole ættleiddu frá Kína árið 2011 og mun koma heim bróðir fyrir börnin sín eftir nokkrar vikur.

SHARE