
Gunnar Dan er rithöfundur, hlaðvarpsstjórnandi og frumkvöðull og hefur undanfarin ár sérhæft sig mikið í umræðu um fljúgandi furðuhluti og annað tengt hinu yfirnáttúrulega. Hann hefur gefið út tvær bækur um fljúgandi furðuhluti sem heita UFO101 og UFO202 og segist hann vera 100% sannfærður um að það séu upplýsingar um tilvist lífs á öðrum hnöttum hjá Bandaríkjastjórn sem eigi eftir að koma fram.
Gunnar var gestur hlaðvarpsins míns, Fullorðins, þar sem við ræðum um líf á öðrum hnöttum og í öðrum víddum, hugvíkkandi efni, neysluna, edrúmennskuna og fleira.
Fylgdu okkur á Facebook
Fylgdu okkur á Instagram
Fylgdu okkur á TikTok

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














