7 hlutir sem heilbrigt fólk gerir á hverjum morgni

Það er mismunandi hvaða hljóð við veljum til að vekja okkur á morgnana. Sumir nota hefðbundið vekjaraklukkuhljóð, meðan aðrir vakna við uppáhalds lagið sitt.

En hvað er það sem heilbrigt fólk gerir um leið og það vaknar á morgnana?

1. Drekktu glas af vatni um leið og þú vaknar: 

Þetta kemur kerfinu af stað og þú vökvar líkamann í leiðinni og meltingin vaknar. Ef þú byrjar á þessu þá ferðu fljótlega að taka eftir breytingum á húðinni, hún verður bjartari og einnig verður meltingin betri. Góður bónus er ef þú kreistir sítrónu saman við vatnið eða setur eina teskeið af eplaediki.

2. Láttu tölvuna og símann alveg í friði í að minnsta kosti klukkutíma: 

Sefur þú með símann við hliðina á þér? Er hann það fyrsta sem þú grípur um leið og þú vaknar? Þetta er afar slæmur ávani. Ef þú getur hamið þig í því að athuga tölvupóst eða skilaboð í símanum og Facebook í u.þ.b. klukkustund þá muntu finna að hugurinn er mun skýrari, það er auðveldara að einbeita sér og þú ert hamingjusamari.

3. Hugsaðu um eitthvað eitt sem þú ert þakklát/ur fyrir: 

Þetta gerir það að verkum að þú ert jákvæðari yfir daginn. Ef þú getur komið upp með þrennt eða fleira þá er það ennþá betra.

4. Farðu út á pall eða svalir og andaðu að þér fersku lofti með djúpum andardrætti, inn um nefið og út um munninn: 

Þarna fyllir þú lungun af fersku lofti. Jafnvel þó það sé vel kalt úti, þá skaltu ekki hætta við. Þetta tekur bara 10 sekúndur! Að gera þetta minnir þig á að þú ert á lífi og ert að anda.

5. Hreyfðu líkamann: 

Þú þarft ekki að stökkva inn í svakalegar æfingar svona rétt fyrir morgunverð, en að hreyfa líkamann bara örlítið er svo góð leið til að koma blóðinu af stað og hrista hann í gang. Gott er að gera teygjuæfingar. Já, eða setja uppáhalds lagið á og dansa eins og enginn sé að horfa.

6. Taktu þér góðan tíma í að borða morgunmatinn: 

Ekki teygja þig í morgunkornið. Einbeittu þér að alvöru morgunmat. Egg, hafragrautur eða smoothie eru frábær morgunmatur.

7. Spegillinn: 

Stattu fyrir framan spegilinn og segðu eitthvað jákvætt um þig sjálfa/n.

Sem dæmi:

Ég er falleg/fallegur, ég hef sjálfstraust og þokka.

Allar frumur líkamans eru heilbrigðar og lifandi.

Mér líður vel þegar ég hugsa vel um mig sjálfa/sjálfan.

Ok, ertu til í þessa áskorun? Eftir smá tíma þá verður þetta að vana og hvað er betra en að vakna í góðu skapi og eiga enn betri dag framundan!

Heimild: foodmatters.tv

Anna Birgis tók saman fyrir Heilsutorg

heilsutorg

SHARE