„Ég vildi ég hefði vitað fyrir 25 ára“ – 30 atriði

Tik tok stjarnan Danielle Walters deildi því á rásinni sinni hvað hún vildi að hún hefði vitað fyrir 25 ára aldurinn.

Svo stelpur! Nú skuluð þið gefa ykkur tíma til að lesa:

  • Seinasta skot kvöldsins er ekki þess virði. Aldrei nokkurn tímann
  • Hafðu náttfötin tilbúin á rúminu áður en þú ferð út á skrallið
  • Fólkið sem á að vera í lífi þínu verður það, hinir verða eftir einhversstaðar á leiðinni. Sumt fólk kemur bara inn í líf þitt til að kenna þér eitthvað.
  • Þó þú reynir, hefur þú ekki stjórn á öllu.
  • Besta leiðin til að eiga í samskiptum við karlmenn, er að gefa þeim enga athygli.
  • Ef þú vilt að fólk komi á ákveðin hátt fram við þig, skaltu prófa að koma þannig fram við aðra og sjáðu hvað gerist.
  • Fylltu bílinn þinn af bensíni. Ekki taka alltaf smá og smá í einu.
  • Gefðu þér alltaf 15 mínútur aukalega til að ferðast á milli staða.
  • Ef þú vilt láta koma vel fram við þig og virða þig, þá verður þú að gera það fyrst. Hugsaðu um líkama þinn, í hvað þú eyðir tímanum þínum og með hverjum.
  • Ekki hræðast að gera eitthvað nýtt. Það versta sem gæti gerst, er að þér líkar það ekki.
  • Þú ert þinn eigin verndari. Þú þarft að passa upp á þig. Stundum þarftu að gera hluti sem þig langar ekki að gera eins og að fara snemma að sofa, borga skuldir, fara í ræktina, borða hollan mat.
  • Þó þú sért í ástarsorg núna, þá munt þú elska aftur.
  • Hann/hún var ekki sálufélagi þinn, ef hann/hún er farin/n úr lífi þínu.
  • Notaðu sólarvörn.
  • Prófaðu að fara upp í rúm með bók fyrir svefninn. Það er geggjað.
  • Ekki ganga fram af þér. Ef þú ert veik, þá ertu veik.
  • Það er allt í lagi að fara upp um stærð í gallabuxum.
  • Honum er í alvöru alveg sama hvort þú sért búin að raka á þér fæturnar. Hann er bara ánægður að vera hjá þér.
  • Þú ÞARFT ekki að vera í aðstæðum sem þér finnast óþægilegar. Þú getur bara gengið út án þess að þurfa að útskýra það fyrir nokkrum manni.
  • Þú ræður hverju þú deilir með öðrum, hvort og hvenær er undir þér komið.
  • Það er alveg hægt að laðast að einhverjum sem þér líkar líka mjög vel við.
  • Ef þig langar að eignast vini, hættu þá að segja nei við öllu sem þér er boðið í.
  • „Filterar“ eru að skemma þig meira andlega en þú getur ímyndað þér.
  • Ef einhver býður þér á stefnumót máttu alveg segja nei.
  • Bara af því að þú lætur ekki einhvern fá það sem hann/hún vill, þýðir ekki að þú þurfir að búa til einhverja afsökun til að passa upp á egóið þeirra.
  • Þegar þú hugsar til vina þinna, sendu þeim eitt lítið sms. Það getur gert alveg fullt.
  • Appelsínuhúð er eitthvað sem allar konur þurfa að sætta sig við.
  • Gefðu fötin þín til þeirra sem þurfa á þeim að halda frekar en að hafa þau ónotuð í skápnum eða í poka sem er „á leiðinni í fatagáminn“.
  • Ef vinur/vinkona þín er ástfangin/n upp fyrir haus skaltu samgleðjast henni/honum. Þinn tími mun koma.
  • Þó þér líði ekki þannig, þá mun allt verða allt í lagi. Vittu til.

SHARE