Segist háður því að hylja sig í húðflúrum

Crewsont er tónlistarmaður í Columbus í Georgia og hefur þakið líkama sinn með húðflúrum. Hann segir að húðflúrin hafi hjálpað honum að finna sjálfan sig og hann elskar að sýna flúrin sín. Hann segist eiga erfitt með að finna sér kærustu því það sé erfitt fyrir konur að vera með manni sem allir séu alltaf að glápa á. Hann segir einnig að foreldrar hans hafi hætt að tala við hann út af þessari „húðflúrs-fíkn“ sem hann sé með.

SHARE