Björgvin Halldórsson er látinn

Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður, er látinn 74 ára að aldri. Hann var bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði í nótt.

Björgvin Helgi Halldórsson (stundum kallaður Bó Halldórs; f. 16. apríl 1951) var íslenskur söngvari, frægastur fyrir að syngja popplög og ballöður sem mörg hafa náð gríðarlegum vinsældum á Íslandi. Hann var valinn „poppstjarna ársins“ þann 1. október 1969.

Björgvin fæddist í Hafnarfirði. Fyrsta hljómsveit hans var Bendix. Hann var þó ekki lengi í þeirri hljómsveit heldur tók við söngnum í Flowers þegar Jónas R. Jónsson hætti. Björgvin söng svo meðal annars með Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs og HLH-flokknum. Einnig starfaði hann sem plötusnúður.

Við vottum fjölskyldu hans og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð.

SHARE