Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Meyjan

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Nóvember fær þig til að hugsa um hvað skiptir í raun máli. Þú gætir áttað þig á því að eitthvað sem þú hefur verið að stressa þig yfir er alls ekki jafn mikilvægt og þú hélst.

Vinnulega verður þú sterk. Þú sérð það sem aðrir sjá ekki og getur leyst vandamál sem hefur verið að pirra alla.

Í fjármálum er gott að fara yfir útgjöld og áskriftir. Þú gætir fundið peninga sem eru bókstaflega að hverfa án þess að þú takir eftir því.

Ástarsambönd verða betri þegar þú hættir að greina hvert einasta orð. Stundum þýðir „allt í lagi“ bara… allt í lagi.

Nóvemberráð: Ekki laga eitthvað sem er ekki bilað.