Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Vatnsberinn

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar

Nóvember getur komið með óvænta hugmynd eða tækifæri. Eitthvað sem þú hefur talið ómögulegt gæti allt í einu litið mun raunhæfar út.

Í vinnunni er gott að treysta innsæinu. Þú sérð möguleika sem aðrir eru ekki enn búnir að sjá.

Í ástinni gæti gamalt mynstur komið upp aftur. Munurinn er að nú hefur þú tækifæri til að bregðast öðruvísi við.

Seinni hluti mánaðarins verður félagslegri og þú ættir að gefa þér tíma til að hitta fólk. Ein áhugaverð samræða gæti orðið mikilvægari en þú heldur.

Nóvemberráð: Ekki fara aftur í sama hring bara vegna þess að þú þekkir leiðina.