Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember
Nóvember færir þér meiri bjartsýni og löngun til að gera eitthvað nýtt. Þegar sólin fer inn í Bogmann 22. nóvember verður þessi tilfinning enn sterkari.
Ferðalög, nám, nýtt áhugamál eða einfaldlega nýtt fólk getur komið inn í lífið.
Þú hefur þó tilhneigingu til að lofa aðeins meira en þú getur staðið við. Reyndu að halda væntingunum aðeins í skefjum.
Í ástinni er gott að vera opinn. Ef þú ert einhleypur gæti áhugaverð manneskja komið inn í lífið í gegnum vinnu, nám eða ferðalag.
Nóvemberráð: Segðu já við einhverju sem þú myndir venjulega segja nei við.


