Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Vogin

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Vogin
23. september — 22. október

Þetta verður áhugaverður mánuður fyrir þig, Vog. Eitthvað sem hefur verið óákveðið í sambandi eða tilfinningamálum fer að skýrast þegar líður á mánuðinn.

Þú gætir fengið skilaboð frá manneskju sem þú áttir ekki von á að heyra frá. Það er undir þér komið hvort þú opnar dyrnar aftur.

Í vinnunni verður mikilvægt að taka ákvörðun. Þú getur ekki haft alla möguleika opna að eilífu.

Fjárhagslega er seinni hluti mánaðarins betri og þú færð meiri tilfinningu fyrir stjórn.

Nóvemberráð: Þú þarft ekki að velja það sem aðrir telja að sé best fyrir þig.