Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Sporðdrekinn

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Þetta er þinn tími, Sporðdreki. Nýtt tungl í merki þínu 9. nóvember gefur mánuðinum sterka tilfinningu fyrir nýju upphafi.

Þú gætir ákveðið að loka kafla sem hefur verið búinn að taka of mikið pláss í lífi þínu. Það þarf ekki að vera dramatískt. Stundum er stærsta breytingin einfaldlega ákvörðunin um að hætta að bíða.

Í ástinni verður þú heiðarlegri en venjulega. Þú vilt ekki lengur hálfsvör eða hálfgerðar tilfinningar.

Vinnulega er gott að hugsa stórt en bíða með mikilvægar ákvarðanir þar til eftir miðjan mánuð, þegar samskipti og ákvarðanataka fara að flæða betur.

Nóvemberráð: Þú þarft ekki að útskýra nýja þig fyrir gamla fólkinu.