Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Steingeitin

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Steingeitin
22. desember — 19. janúar

Þú ert að vinna að einhverju sem mun skila sér, þó þú sjáir ekki árangurinn strax. Nóvember minnir þig á að sumt tekur tíma.

Í vinnunni gæti verkefni sem hefur gengið hægt loksins tekið við sér. Þú færð líka meiri viðurkenningu fyrir það sem þú hefur gert en þú átt von á.

Í ástinni þarftu að leyfa þér að vera aðeins mýkri. Ekki allt þarf að vera skipulagt.

Fjárhagslega er skynsamlegt að hugsa til lengri tíma. Það sem þú gerir núna gæti haft áhrif á næsta ár.

Nóvemberráð: Þú þarft ekki að hlaupa. Þú ert samt á leiðinni.