Æðislegar kjúklingavefjur – Uppskrift

Sáraeinfaldar vefjur 

Það þarf ekki að vera erfitt að elda mexikóskan mat. Við ætlum að birta nokkrar fljótlegar og einfaldar uppskriftir til að sýna ykkur fram á að svo sé. Uppskriftirnar eru ætlaðar fyrir 6 manns en auðvitað er hægt að hafa þær tvö- eða þrefaldar eða bara eins stórar og maður vill  hafa þær.  Hér kemur sú fyrsta.

Kjúklingur og ostur í vefju

Efni (ætlað fyrir 6)

  • 225 gr. rjómaostur
  • 1 dós kjúklingasúpa
  • 1 bolli  salsa (beint úr búðinni ! )
  • 3 bollar kjúklingabringur, skornar í bita
  • 12 tortillur
  • 1 bolli rifinn ostur
  • 1 lítil dós svartar ólífur
  • 1/4 bolli sýrður rjómi

Aðferð 

  1. Hitið ofninn upp í 180˚C
  2. Blandið saman rjómaostinum, súpunni og salsa og látið krauma á lágum hita.
  3. Bætið kjúklingnum út í.
  4. Hitið tortillurnar (maís-flatkökurnar) í míkróofni nokkrar sekúndur til að mýkja þær.
  5. Setjið kjúklingafyllinguna á hverja köku og rúllið upp ( eins og pönnuköku)
  6. Látið vefjurnar á eldfast fat.
  7. Stráið vel af rifnum osti á vefjurnar.
  8. Lokið með álpappír og látið bakast í 30 mín.
  9. Skreytið með ólívum og sýrðum rjóma eftir smekk.
SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here