Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna 10. september

Í tilefni Alþjóðadags sjálfsvígsforvarna miðvikudaginn 10. september 2014 verður haldin málstofa í Iðnó um þagnarhjúpinn sem skapast hefur um sjálfsvíg. Einnig verða haldnar kyrrðarstundir klukkan tuttugu á þremur stöðum á landinu til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Dagskrá alþjóðlega sjálfsvígsforvarnadagsins er unnin í víðtæku samstarfi ýmissa stofnana og félaga sem koma að málefnum sjálfsvíga í samfélaginu.

Samstarfsaðilarnir eru þjóðkirkjan, Embætti landlæknis, geðsvið LSH, Iðnó, Ný dögun, Samhygð, Lifa, Hugarafl, Rauði krossinn og Geðhjálp.

Dagskráin er sem hér segir:

10. september 2014 – Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna
Dagskrá:
í samstarfi þjóðkirkjunnar, Embættis landlæknis, geðsviðs LSH, Iðnó, Nýrrar dögunar, Samhygðar, Lifa, Hugarafls, Rauða krossins og Geðhjálpar.
• „Rjúfum þagnarmúrinn“. Málstofa um þögnina í kringum sjálfsvíg,  haldin í Iðnó við Tjörnina.
• Kyrrðarstundir á þremur stöðum á landinu í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Í tilefni Alþjóðadags sjálfsvígsforvarna miðvikudaginn 10. september 2014 verður viðburður í Iðnó um þagnarhjúpinn sem skapast hefur um sjálfsvíg. Einnig verða haldnar kyrrðarstundir á þremur stöðum á landinu til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
1. „Rjúfum þagnarmúrinn“
Málstofa í Iðnó við Tjörnina 10. september 2014, kl. 16:00.
Fjallað um þögn og þöggun í kringum sjálfsvíg á Íslandi.
• Auður Axelsdóttir, forstöðukona í Geðheilsa-Eftirfylgd, sem vinnur einnig með Hugarafli. Fjallar um afleiðingar sjálfsvígs fyrir aðstandendur og mikilvægi þess að aðstandendur fái aðstoð við að vinna úr sorg sinni.
• Óttar Guðmundsson, geðlæknir á geðsviði LSH. Fjallar um sjálfsvíg ungra karla.
• Vilhjálmur Birgisson segir frá reynslu sinni sem aðstandandi eftir sjálfsvíg.
• Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra flytur ávarp.
• Tónlist: Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona.
• Fundarstjóri: Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur hjá Embætti landlæknis
2. Kyrrðarstundir í Reykjavík, á Akureyri og Egilstöðum kl. 20:00
til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Samkoman í Dómkirkjunni er á þessa leið: 
• Aðstandandi eftir sjálfsvíg segir frá reynslu sinni.
• Sr. Halldór Reynisson flytur hugvekju.
• Tónlist: Högni Egilsson.
• Óttar Guðmundsson geðlæknir leiðir kyrrðarstundina.
• Kveikt á kertum til minningar um þau sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
• Orgelleikur: Helga Guðmundsdóttir.
Samkoman í Akureyrarkirkju  er á þessa leið;
• Aðstandandi eftir sjálfsvíg segir frá reynslu sinni.
• Tónlistarflutningur.
• Sr. Hildur Eir Bolladóttir leiðir stundina og flytur hugvekju.
• Kveikt á kertum til minningar um þau sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Eftir kyrrðarstundina verður kynning á starfi Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð og aðstandenda eftir sjálfsvíg.
Samkoman í Egilstaðakirkju er á þessa leið;
• Aðstandandi eftir sjálfsvíg segir frá reynslu sinni
• Tónlistarflutningur.
• Ólöf Margrét Snorradóttir guðfræðingur leiðir stundina og flytur hugvekju.
• Kveikt á kertum til minningar um þau sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Eftir kyrrðarstundina verður kynning á starfi Nýrrar Dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð og aðstandenda eftir sjálfsvíg.
Nánari upplýsingar veita:
Salbjörg Bjarnadóttir, Embætti landlæknis, s. 862-8156
Óttar Guðmundsson, geðlæknir LSH, s. 8245570
Halldór Reynisson prestur, s. 8561571
Benedikt Guðmundsson aðstandandi, s. 897-2386
Auður Axelsdóttir forstöðukona í Geðheilsa-Eftirfylgd, s. 6637750

Salbjörg Bjarnadóttir
geðhjúkrunarfræðingur
fulltrúi Embætti landlæknis í samstarfshópnum

 

heilsutorg

SHARE