Amber Heard og Johnny Depp skilja

Leikkonan Amber Heard (30) hefur ákveðið að sækja um skilnað frá hinum fræga Johnny Depp (52). Þau hafa verið gift í 15 mánuði, en Amber segir ástæðu skilnaðarins vera óásættanlegan árgreining. Það sem merkilegt þykir, er að Amber sótti skilnaðarpappírana aðeins tveimur dögum eftir að móðir Johnny lést, en leikarinn brást við með því að neita henni um makalífeyri.

Sjá einnig: Johnny Depp: Reykjandi á rauða dreglinum

Sagt hefur verið að fjölskylda Johnny hafi alls ekki þolað Amber og munu deilur væntanlega koma upp, vegna þess að ekki var skrifað undir neina kaupmála þegar þau gengu í hjónabandið. Johnny er forríkur, en Amber á eyju á Bahamas og bæði eru þau farsælir leikarar.

Sjá einnig: Dóttir Johnny Depp er nýjasta andlit Chanel

Amber hefur verið í kasti við lögin að undanförnu og fékk hún á sig ákæru fyrir að smygla hundunum sínum Pistol og Boo til Ástralíu þegar hún var að heimsækja Johnny við tökur á mynd sem hann lék í.

6752236-3x2-940x627

amber-heard-johnny-depp-australia-042115

johnny-depp-amber-heard-video-apology

for8

SHARE