Ariana Grande brotnar niður á sviði og fer að hágráta

Ariana Grande hélt tónleika í Madison Squere Garden þann 20.mars síðastliðinn. Átti söngkonan knáa erfitt með að halda andliti á meðan hún flutti lagið My Everything. En áður en lagið hófst var sýnt stutt myndband af afa hennar heitnum, þar sem hann hvetur hana áfram í tónlistinni: ,,Tónlist – viltu búa til tónlist? Gerðu það! Ekki vera hrædd. Láttu engan ógna þér. Farðu þínar eigin leiðir.”

Myndbandið hafði þau áhrif á Ariönu að erfitt var að flytja lagið – eins og myndskeiðið hér að neðan sýnir:

https://www.youtube.com/watch?v=Z81JnHZv8_A&ps=docs

Sjá einnig: Ariana Grande leikur Celine Dion

SHARE