Banaslys við Hvalfjarðargöngin

Banaslys varð skammt norðan Hvalfjarðarganga um klukkan hálf þrjú í nótt. Jeppi sem ekið var til austurs ók framan á fólksbifreið sem kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést.

Ökumaður jeppans var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús en hann er grunaður um ölvun við akstur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi.

Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here