Barn með tvö höfuð fæddist í Bangladesh

Barn með tvö höfuð fæddist í Bangladesh. Um síamstvíburastúlkur er að ræða, en í þessu tilfelli eru börnin með einungis einn heilan líkama og deila öllum líffærum sameiginlega.

Sjá einnig: Síamstvíburar sjá með augum hvor annarrar

Þessi myndun síamstvíbura gerist í 1 af hverjum 100.000 fæðingum og eru líkurnar á því að börnin lifi einungis 40%.

Stúlkurnar eiga í erfiðleikum með öndun og eru því undir eftirliti lækna þar í borg og hefur múgur og margmenni hópast fyrir utan sjúkrahúsið í þeirri von um að bera undraverkið augum.

Faðir stúlknanna þakkar Allah fyrir að bæði stúlkurnar og móðir þeirra séu á lífi, en börn á þessum slóðum, sem fæðast með líkamlega vansköpun, hafa gjarnan verið talin í guðatölu. Hann hefur einnig áhyggjur af því hvernig hann muni koma til með að sjá fyrir stúlkunum í framtíðinni vegna þess að þau hjónin eru afar fátæk.

Sjá einnig: Síamstvíburar fundu ástina í sama manni

Enginn möguleiki er á því að skilja stúlkurnar að með aðgerð, þar sem þær hafa bara einn líkama og eitt af hverju nauðsynlegu líffæri.

 

GkTI8IgOsd0c11c6a1a41a10e1c-3315493-A_baby_with_two_heads_was_born_in_a_hospital_in_Brahmanbaria_Ban-a-18_1447344726950

 

Sjá einnig: Níræðar tvíburasystur: Hafa verið óaðskiljanlegar alla tíð

 

article-2580107-1C42385E00000578-525_634x547

 

 

SHARE