Ber að ofan og ölvaður í Leifsstöð

Lögreglan á Suðurnesjum var í fyrrakvöld kvödd í Flugstöð Leifs Eiríksonar þar sem ölvaður maður var til vandræða í komusal. Hafði hann meðal annars ýtt við tollverði og farið úr af ofan.

Lögreglumenn ræddu við manninn sem var mjög ölvaður og illskiljanlegur. Þeir gerðu honum grein fyrir því að hann væri ekki lengur velkominn í flugstöðinni vegna ástands síns og báðu hann að fylgja sér út. Hann rölti með þeim af stað, en spyrnti svo við fótum og heimtaði að fá að kaupa áfengi í fríhöfninni. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir að það væri ekki í boði og sló hann þá í einn þeirra.

Hann var þá handjárnaður og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var látinn sofa úr sér.

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here