Berbrjósta Rihanna veldur usla á Instagram – Myndir

Rihanna birti í gær á Twitter síðunni sinni mynd af sjálfri sér á forsíðu franska tímaritsins Lui. Myndin hefur vakið mikla athygli þar sem Rihanna er berbrjósta en hún setti einnig inn fleiri myndir úr sömu myndatöku þar sem hún er ber að neðan.

Rihanna er þekkt fyrir að ögra með klæðalitlum myndum af sjálfri sér á bæði Twitter og Instagram síðu sinni og því ættu þessar myndir ekki að koma svo mikið á óvart. Stjórnendum Instagram finnst þó nó komið af nektarmyndum frá Rihönnu og lokuðu þeir Instagram aðgangi hennar tímabundið í dag þangað til myndin var fjarlægð. Myndin sem hún setti inná stangast á við lög Instagram um nektar- og kynörvandimyndir og sáu stjórnendur sér ekki annað fært en að loka fyrir aðganginn hennar en gáfu henni þó möguleikann á að fjarlægja hana en í sumum tilfellum er aðgöngum alveg eytt.

BmahrQiCIAAx5s8-2

 

Rihanna-for-Lui-Magazine-April-2014-BellaNaijacom-06-600x372

 

Rihanna-Lui-Magazine-Bottomless

SHARE