Bounty terta frá Matarlyst

Nú styttist í Páska og stefnir í að landinn eyði þeim heima. Okkur á hun.is finnst góð hugmynd að fara eftir tilmælum Víðis og co og setja upp skemmtilega stemmingu heima um páskana.

Þessi truflaða terta kemur frá Matarlyst en við hvetjum ykkur til að fylgja þeim á instagram og snappinu líka. Á facebook og instagram heitum við Matarlyst en á snappinu er það Matar-lyst .

Þið sem elskið kókosmjöl og bounty verðið ekki svikin af þessari tertu sem er svo fljótleg og afar einföld í undirbúning.

Hráefni í botn

5 eggjahvítur
200 g sykur
200 g kókosmjöl

Aðferð

Hitið ofninn í 180 gráður.
Þeytið eggjahvítur þar til þær fara að freyða bætið þá sykri út í, þeytið þar til stífþeytt.
Bætið kókosmjöli út í hrærið varlega saman með sleikju.
Setjið bökunnarpappír í 1 27 cm form, bakið í 20 mín.

Sjá meira: nautapottrettur-med-hvitlaukskartoflum/

Krem

200 g suðursúkkulaði
50 g smjör
4 eggjarauður
60 g flórsykur

Aðferð

Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við vægan hita.
Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman þá meina ég vel.
Hellið súkkulaðiblöndunni í mjórri bunu út í hrærivélaskálina, blandið varlega þar til komið er saman.
Setjið yfir kaldan botninn.
Skreytið af vild, eða ekki…

Borin fram ein og sér eða með þeyttum rjóma eða ís.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here