Brúðkaup: Hvað er viðeigandi og hvað ekki?

Stelpurnar á Nudemagazine settu saman áhugaverðan lista í tengslum við brúðkaup. Listann kalla þær “Do´s and Don´ts @Weddings.”

dosdonts

Do´s:

  • Láttu vita tímanlega hvort þú mætir í brúðkaupið eða ekki. Það er ekki óskastaða brúðhjónanna að hafa ekki gert ráð fyrir þér í sætaskipan.
  • Mættu tímanlega í athöfnina. Fátt er vandræðalegra en að ganga inn kirkjugólfið á sama tíma og brúðurin.
  • Mundu að slökkva á símanum í athöfninni. Brúðhjónin báðu Justin Timberlake ekki um að taka lagið í miðri hjónavígslu.
  • Veldu gjöf af gjafalista brúðhjónanna. Það sparar þér mikla fyrirhöfn og þú getur verið viss um að brúðhjónin verði ánægð.
  • Verið meðvituð um dagskrána; hvenær á að skera kökuna, dansinn verður tekinn, ræður fluttar o.s.frv.. Það er skemmtilegra að vera partur af upplifuninni.
  •  Ætlir þú að halda ræðu í veislunni er vissara að skrifa hjá sér nokkra punkta. Stressið getur læðst að vönustu ræðumönnum á stundum sem þessum.

w1

Don´ts:

  • Á boðskortinu er tekið fram hverjum er boðið til brúðkaupsins. Ekki mæta með vin eða vinkonu nema minnst hafi verið á slíkt.
  • Það er algengara en ekki að brúðurin kæðist hvítu á brúðkaupsdaginn. Taktu tillit og forðastu að klæðast hvítu til að draga ekki athyglina frá brúðinni.
  • Vissulega vilja allir skarta sínu fegursta á stundu sem þessari en geymdu þó flegna pallíettukjólinn til næstu helgar. Þetta er dagur brúðhjónanna, leyfðu þeim að skína eins og stjörnur.
  • Einn drykkur, tveir drykkir, þrír drykkir .. maður er fljótur að missa töluna. Allt er gott í hófi og þar eru áfengir drykkir engin undantekning. Svo ekki sé talað um ef þú ætlar að flytja ræðu.
  • Venjan er að brúðhjónin stígi fyrsta dansinn og gestir fylgi síðan í kjölfarið. Þú skalt reyna að hemja þig Jackson, moonwalkaðu ekki inn á gólfið fyrr en brúðhjónin hafa stigið sinn dans.
  • Skildu pólitíkuna og almennt þras eftir heima, trúðu mér það fer ekki neitt. Hafðu umræðuefniðlétt og skemmtilegt og njóttu þessa einstaka dags.

nude-logo-nytt1-1

Tengdar greinar:

Krúttlegasta brúðkaupsmynd allra tíma!

Pabbi kemur dóttur sinni á óvart í brúðkaupinu hennar

Kim sýnir á sér brjóstin í brúðkaupsferðinni

SHARE