Byrjaði að farða litlu systur

Alex er fyrsti strákurinn til að útskrifast sem förðunarfræðingur frá Reykjavík makeup school. Hann hefur alltaf verið mjög listrænn og stefndi á listnám en bjóst ekki við að finna sig í förðunarnámi. Þetta átti bara að vera áhugamál. Alex á rússneska móður en faðir hans er Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta. Þeir eru góðir félagar og einstaklega líkir í útliti.

 

„Síðan ég man eftir mér hef ég alltaf fylgst með konunum í kringum mig mála sig, fyrst mömmu og svo vinkonunum mínum. Þegar vinkonur mínar voru að mála sig þá fór ég að skipta mér af og gefa mitt álit á því sem þær voru að gera. Svo byrjaði ég að prófa að mála yngri systur mína fyrir böll í skólanum og í framhaldinu vinkonur mínar,“ segir Alexander Sigurður Sigfússon sem í dag verður fyrsti strákurinn til að útskrifast sem förðunarfræðingur frá Reykjavík makeup school.

Var áhugamál í fyrstu

Hann hefur alltaf verið mjög listrænn, teiknað mikið og sá fyrir sér að fara í einhvers konar listnám. Honum datt samt ekki í hug að hann myndi finna sína hillu í förðunarfræði. Það var ekki fyrr en ein vinkona hans fór í Reykjavík makeup school og bar skólanum vel söguna að hann fór að spá í námið. Hann lenti á biðlista þegar hann sótti um en komst inn á síðustu stundu nú í haust.

„Þetta var fyrst eitthvað sem mig langaði að prófa að læra, svona til að hafa meðfram einhverju öðru, kannski frekar sem áhugamál en vinnu, en ég fílaði mig svo vel í náminu að ég er búinn að ákveða að þetta er eitthvað sem ég vil gera. Ég sé því alveg fyrir mér að fara í áframhaldandi nám. Ég ætla að sjá hvernig þetta mun ganga hjá mér í vetur og taka svo ákvörðun um framhaldið,“ segir Alexander sem er 21 árs og hefur starfað í versluninni Spútnik á Laugavegi frá því hann lauk stúdentsprófi frá MH á síðasta ári.

Lærði meira en hann bjóst við

Þrátt fyrir að Alexander, eða Alex eins og hann er alltaf kallaður, hafi haft áhuga á förðun frá barnæsku og prófað sig áfram síðustu ár, þá segist hann í raun ekkert hafa kunnað að farða. „Ég hafði verið að horfa á myndbönd á Instagram og Youtube en ég kunni í raun ekki að nota vörurnar á réttan hátt. Þær í skólanum kenndu mér það og ég lærði miklu meira en ég bjóst við að ég myndi gera. Þetta er með því skemmtilegasta sem ég hef gert og kennararnir eru þeir bestu í heimi.“ Námið stóðst því allar væntingar hans og vel rúmlega það. „Ég bjóst aldrei við því að ég myndi átta mig á því að þetta væri það sem ég vildi gera.“

Það var í raun eitt verkefni sem gerði útslagið og sannfærði Alex endanlega um að þetta væri draumastarfið. En vinkona hans, sem er í Ljósmyndaskóla Sissu, var að gera lokaverkefni og bað hann um að farða módelin fyrir sig. Þar fékk hann nasaþefinn af því að vera á setti með fyrirsætunum og ljósmyndurunum. „Það var þá sem ég áttaði mig á því að þetta vildi ég gera. Ég er mjög spenntur fyrir tímabilaförðun og tískuförðun. Ég hef líka alltaf verið spenntur fyrir tísku og fatnaði.“

31092_Alexander_Sigurdur_Sigfusson-05

Hálf rússneskur

Sem barn var í Alex Myndlistarskólanum í Reykjavík og það hefur alltaf legið vel fyrir honum að skapa í höndunum. „Ég teiknaði mikið af portrettmyndum af stelpum og konum þar sem ég teiknaði augnhár, eyeliner og skyggingar á augnskugga mjög nákvæmlega. En mamma mín er snyrtifræðingur og átti naglastofu. Þannig áhuginn hefur örugglega líka smitast frá henni. Mamma sagði að ég hefði alltaf haft þetta í mér og það voru allir í kringum mig mjög ánægðir með að ég færi í þetta nám.“

Móðir Alex, Anastaia Pavlova, er rússnesk og fluttist hingað til lands 18 ára gömul, með foreldrum sínum sem störfuðu í rússneska sendiráðinu. En faðir hans er Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður í handbolta.
Alex er fæddur og uppalinn á Íslandi en talar reiprennandi rússnesku og er duglegur að halda henni við. Hann talar yfirleitt rússnesku við mömmu sína og hefur gert alveg frá því byrjaði að tala. Honum finnst lítið mál að skipta á milli tungumála þó rússneska og íslenska séu mjög ólík tungumál. „Ég kenndi sjálfum mér að skrifa og lesa rússneskuna en ég kann ekki stafsetningu og málfræði rétt. Svo af því mamma er rússnesk og pabbi íslenskur þá töluðu þau ensku sín á milli. Þannig ég lærði líka ensku á heimilinu.“

Ræktaði tungumálið

Alex segir það hafa komið sér á óvart hvað margir tali rússnesku á Íslandi, en þegar hann var í MH þá voru fimm eða sex krakkar í skólanum sem höfðu einhverja tengingu við Rússland eða töluðu rússnesku.
„Þegar ég var lítill þá gat ég farið í hálfgerðan rússneskuskóla um helgar. Og vinkona hennar mömmu skipulagði reglulega viðburði fyrir rússneska krakka sem bjuggu á Íslandi, til að hittast og rækta tungumálið. Það voru mjög margir sem mættu á það. Ég ánægður með að rússnesku rótunum hafi verið haldið svona vel við hjá mér. Ég held að það muni alveg koma mér að góðum notum í framtíðinni að kunna rússnesku.“

Þegar Alex var yngri fór hann alltaf til Rússlands á sumrin að heimsækja ættingja sína, en það hefur aðeins dregið úr því í seinni tíð, eftir að hann byrjaði að vinna. „Þegar foreldrar mínir skildu fór mamma reyndar með mig í smá tíma til Rússlands en svo komum við aftur hingað svo ég gæti verið í sambandi við ömmu og afa og pabba, en foreldrar mínir eru mjög góðir vinir. Ísland er líka svo góður staður til að alast upp. Pabbi var alltaf að spila handbolta úti þegar ég var lítill en ég heimsótti hann reglulega. Hann bjó meðal annars í Þýskalandi og á Spáni.“

Ekki ýtt út í handbolta

Alex og faðir hans eru mjög líkir í útliti og þeir eru góðir vinir þó áhugamál þeirra séu kannski ólík. „Foreldrar mínir reyndu að setja mig í íþróttir þegar ég var lítill en ég entist ekkert í því. Ég fór bara í myndlistarskólann.“ Hann segir föður sinn alls ekki hafa orðið svekktan yfir því að sonurinn hefði ekki haft áhuga á að feta í fótspor hans í handboltanum. „Honum var alveg sama,“ segir Alex hlæjandi. Það er greinilegt að þrýstingurinn á að hann færi á handboltaæfingar var ekki mikill. „Ég æfði samt einhverjar íþróttir, eins og körfubolta og karate, en foreldrar mínir vilja að ég geri það sem ég hef áhuga á og hafa alltaf stutt mig í öllu sem ég geri.“

Að gera eitthvað öðruvísi

Þrátt fyrir að Alex sé fyrsti strákurinn til að útskrifast sem förðunarfræðingur frá Reykjavík makeup school þá hafa fleiri strákar sótt um að komast inn í námið. „Þeir hafa hins vegar allir hætt við af einhverjum ástæðum. Ég var sjálfur alltaf með það bak við eyrað þegar ég sótti um að það væri kannski skrýtið að vera strákur í þessu námi. Ég var ekki beint stressaður eða smeykur en mjög meðvitaður um að ég væri að gera eitthvað öðruvísi. En svo kom ég skólann og þessar hugsanir hurfu strax.“

Alex er strax kominn með nokkur verkefni sem förðunarfræðingur, meðal annars með einum kennara úr skólanum og svo mun hann farða fyrir tískusýningu á næstunni. Hann er spenntur að fá að gera meira af því sem hann hefur ástríðu fyrir. Og að áhugamálið þróist yfir í starfsferill. „Ég ætla að safna meira í möppu og skapa mér eitthvert nafn. Það er frábært að fá þessi tækifæri, mér finnst þetta mjög gaman.“

Mynd/Rut

SHARE