Dásamleg Snickerskaka – Uppskrift

Botn:

200 g döðlur lagðar í bleyti í 10 mín

100 g möndlur

100 g kókósmjöl

1/2 tsk. vanilluduft eða dropar

Möndlurnar maukaðar fyrst í matvinnsluvél og hitt sett út í á eftir. Þessu er þrýst niður í kökuform sem er klætt með bökunarpappír. Sett í frysti í ca 10 – 15 mín. Botninn tekinn út og lífrænu grófu hnetusmjöri smurt yfir, magn fer eftir smekk. Sett aftur í frysti á meðan súkkulaðið er búið til.

Súkkulaðibráðin:

1 dl. kókósolía (brædd í vatnsbaði)

1 dl. hreint hrákakó (lífrænt)

1/2 dl. agave sýróp

Þessu hellt yfir og kakan geymd í frystinum. Gott að skera niður í konfektbita og geyma hana þannig í frysti. Berist fram ísköld.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here