DIY – Eins og ferskur sumarblær

Hvað er hægt að gera sér til dundurs innandyra í sumarfríinu, þegar rigningin virðist ætla að vera allsráðandi, tjaldútilegur sem draumi líkast og buddan leyfir ekki landflótta?
Þá er upplagt að búa sér til gerviútilegu innan dyra í temmilegum hita og kósíheitum. Tjalda með krökkunum á stofugólfinu, sjóða egg á prímus og toppa þetta svo með því að búa til ilm á flösku sem ætti að nægja til þess að fá tilfinningu fyrir hlýjum og ferskum sumarvindum leika um íbúðina.

Uppskrift:

  • 2 tsk hreinn vodki (mæli samt með að hann verði ekki notaður í annað en þessa uppskrift)
  • 30 dropar af ilmkjarnaolíu eftir smekk t.d. lavender eða sítrónu.
  • 11/2 bolli soðið vatn sem hefur verið kælt.

Aðferð:

  • Finnið dáldið smart glerflöskur, helst sem hægt er að spreyja úr eða látið grillpinna úr tré ofan í flöskuna þá mun ilmurinn dreifast betur.
  • Sótthreinsið flöskuna með því að sjóða í potti.
  • Öllum hráefnum blandað saman.
  • Munið að hrista fyrir hverja notkun.

 

 

Heimild:
www.casasugar.com

 

 

SHARE