Dónalega lostafull og letilega rokkuð vorlína Tom Ford 2015

Lostafengin vor- og sumarlína Tom Ford sem kynnt var á nýyfirstaðinni tískuviku í London þykir vera í hrópandi ósamræmi við klassískar og látlausar línur sem ófáir hönnuðir kynntu til sögunnar við sama tækifæri.

screenshot-fashion.telegraph.co.uk 2014-09-24 14-49-42

Meðan flatbotna skór, kynlausar draktir og sportlegir kvöldkjólar einkenndu tískuvikuna í London þykir Tom Ford enn einu sinni hafa sannað og sýnt hvers hugarflug hans er megnugt; en lína Tom Ford ber sterkan keim af áhrifum frá Burlesque tískunni.

screenshot-cdn.fashionisers.com 2014-09-24 14-53-34

Gullnar geirvörtudúllur, aðsniðnar og ögrandi síðbuxur  – svartir tónar og gylltir þræðir, silfrað yfirbragð með bleikum og grænum tónum ráða ríkjum í vor- og sumarlínu Tom Ford árið 2015.

screenshot-fashion.telegraph.co.uk 2014-09-24 14-52-05

Logagyllt minipils, glitrandi jakkafatnaður, dulúðugar skikkjur og glimmerbryddingar. Svimandi háir pinnahælar í svörtum tónum og dýramynstur. Allt er Tom Ford leyfilegt.

screenshot-fashion.telegraph.co.uk 2014-09-24 14-51-15

Enginn vafi leikur á því að Tom Ford tók tískupallana í London með stormandi áhlaupi, nær óþægilega og eggjandi áleitinn í viðleitni sinni til að skapa ögrandi línu sem hæfir flestum tilefnum og sem áður, tekur tískuheimurinn við sér þegar Tom Ford mælir.

Hér má sjá vor- og sumarlínu Tom Ford árið 2015:

 

SHARE