Ég er enginn engill – ALLAR KONUR eru sexí!

Ögrandi, mjúkholda og sjálfsöruggar fyrirsætur sem fáklæddar birtust nýverið í undirfataauglýsingu frá tískumerkinu Lane Bryant, sem ber heitið Cacique – er án efa hörð gagnrýni á þá fullkomnu líkamsímynd sem englar Viktoríu varpa gjarna upp þegar þær klæðast silkinærfötum frá undirfatarisanum.

Sjá einnig: Allt vitlaust vegna „ógeðfelldra“ auglýsinga Victoria’s Secret

screenshot-www.youtube.com 2015-04-09 11-55-46

Verst geymda leyndarmál Viktoríu mun þá sú staðreynd að tælandi undirfatnaðurinn frá vörumerkinu er ófáanlegur í yfirstærðum og hafa undirskriftarlistar, mótmælagöngur og harðorðar ljósmyndaherferðir gengið ljósum logum á netinu undanfarin misseri – allt í þeim tilgangi að hrekja þær viðteknu hugmyndir að konur verði að vera rétt undir kjörþyngd til að geta talist fallegar vexti.

Sjá einnig: Munúðarfull Candice Huffine elskar að vera módel í yfirstærð

screenshot-www.youtube.com 2015-04-09 11-57-35

Stórar skálastærðar, sjúklega sexí nærbuxur í hæfilegum númerum og svo sjálfsöruggar konur sem líður vel í eigin skinni – að ógleymdum frelsandi ummælunum sem sjálfar fyrirsæturnar láta falla í auglýsingaherferðinni sem sjá má hér að neðan.

Hversu leiðinlegt væri ef allir væru eins?

Ég er enginn engill …

… ég meina, elskan, hefurðu séð allar þessar línur?

Skemmtilegur óður til allra kvenna sem umfaðmar fjölbreytilegar stærðir og vaxtarlag – sem með örgrandi nálgun skorar á hólm þær fyrirfram mótuðu hugmyndir um hvað er kynþokkafullt með sterkum undirtóni …. ALLAR KONUR eru kynþokkafullar!

SHARE