,,Ég er sérfræðingur þegar kemur að megrunarkúrum”

 Jennifer Aniston segir heilbrigt líferni vera lykilinn að því að líta vel út á öllum aldri. Í viðtali við Yahoo! Beauty sagði leikkonan að hollt matarræði, líkamsrækt og jákvætt hugarfar væru hennar helstu vopn þegar kæmi að útlitinu. Jennifer, sem komin er á fimmtugsaldur, segir að sér líði ekkert öðruvísi núna en þegar hún var tvítug:

Þú heldur í heilsuna með heilbrigðum lífstíl. Líðan þín veltur á líferninu.

Sjá einnig: Jennifer Aniston tjáir sig um móðurhlutverkið og hjónaband

2963636A00000578-3112771-image-m-22_1433534920580

Jennifer hyggur nú á bókaskrif og á bók hennar að hjálpa fólki að tileinka sér hinn margumrædda heilbrigða lífsstíl.

Ég er sérfræðingur þegar kemur að megrunarkúrum. Ég er vel fær um að hjálpa öðrum.

Sjá einnig: Biður Jennifer Aniston um að hætta að blaðra um látinn eiginmann sinn

Við kaupum þessa bók. Það er á hreinu.

SHARE