„Ég vil ekki að hún verði bara ein í röð talna um sjálfsvíg“ – Marín Ösp skrifar um tvíburasystur sína

Marín Ösp Ómarsdóttir birti sláandi og átakanlega færslu um tvíburasystur sína, Bríeti Irmu, sem tók sitt eigið líf þann 24. ágúst síðastliðinn. Bríet átti litla þriggja ára gamla stúlku sem situr nú eftir móðurlaus.

Marín segir að systir hennar hafi átt sinn djöful að draga en hún hafi ekki getað fengið þá hjálp sem hún þurfti á að halda:

„Bríet var í stöðugri baráttu við eigin sjálfsmynd og hugsanir. Hún glímdi við andleg veikindi frá ungum aldri og síðar fíknivanda, en á sama tíma var hún í leit að bata og betri líðan. Biðlistar, skortur á úrræðum, óaðgengileg þjónusta var allt sem gerði veikindin þyngri og einmannalegri. Þegar við reyndum að berjast fyrir henni var okkur ítrekað vísað á milli, eins og ábyrgðin væri alltaf annars staðar. Það endaði með þessari hörmulegu niðurstöðu.“

Marín segir að þar sem systir hennar hafi búið úti á landi hafi takmarkaða hjálp verið að fá fyrir hana: „Bríet var ekki sjúklingur á biðlista. Hún var ekki mál í kerfinu. Hún var manneskja með drauma, vonir og þrá. Hún var systir, hún var móðir, hún var dóttir og hún var vinkona. Og nú er hún farin. Ég vil ekki að hún verði bara ein í röð talna um sjálfsvíg. Ég vil að saga hennar verði hvatning til vitundarvakningar. Að hún verði áminning um að hér þurfi aðgerðir!!“

Það eru eflaust margir sem tengja við reynslu Marínar og ekki síður systur hennar, Bríetar, og þess vegna fengum við leyfi til þess að birta þessa færslu hér.

SHARE