Ein stjarnanna í Games of Thrones vill ekki koma fram í fleiri nektarsenum.
Þeir sem fylgjast með Games of Thrones kannast við sjóðheit nektaratriði í þáttunum. Nú herma fréttir að ein stjarna þáttanna hafi tilkynnt það að hún kæmi ekki fram í fleiri nektarsenum.
Emilia Clarke.
Stúlkan sem ekki hefur verið nafngreind ennþá segist vilja vera þekkt fyrir leiklistarhæfileika sína ekki brjóstin.
Vangaveltur hafa verið um að leikkonan umtalaða sé Emilia Clarke – sem leikur dóttur látins konungs, Daenerys Targaryen.
Þættirnir hafa verið gagnrýndir fyrir of mikla nekt en öðrum finnst nektin vera stíll þáttanna. Hvað finnst þér? Heldur þú að umtalaða leikkonan sé hin gullfallega Emilia Clarke?